Sumir dagar raðast öðruvísi upp en aðrir. Það vildi til á dögunum að
það varð sannkallaður Jaguardagur hjá okkur á Aðalverkstæðinu þegar þrjú
 stykki Jaguar áttu tíma sama daginn í viðgerð.  Ekki leiddist Bjarti
það þar sem hann er mikill áhugamaður um breska bíla.